Albert gæti fengið fleiri tækifæri

Jürgen Locadia
Jürgen Locadia Ljósmynd/Brighton

Framherjinn Jürgen Locadia er orðinn dýrasti leikmaðurinn í sögu enska úrvalsdeildarfélagsins Brighton. Enska félagið keypti hann á 14 milljónir punda í kvöld af hollenska félaginu PSV Eindhoven.

Þetta gætu reynst góðar fréttir fyrir Albert Guðmundsson, leikmann PSV, sem hefur lítið fengið að spreyta sig á leiktíðinni m.a vegna þess að Locadia hefur spilað vel. Locadia er 24 ára hollenskur framherji sem hefur skorað 45 mörk í 127 leikjum fyrir hollenska félagið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert