Kristján Flóki með eina mark Start

Kristján Flóki Finnbogason skoraði fyrir Start í dag.
Kristján Flóki Finnbogason skoraði fyrir Start í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Norska úrvalsdeildarliðið Start tapaði óvænt fyrir D-deildarliðinu Flekkerøy í æfingaleik á heimavelli sínum í dag, 2:1. 

Kristján Flóki Finnbogason var í byrjunarliði Start og hann jafnaði leikinn í 1:1 á 7. mínútu. Það dugði hins vegar ekki til því Henrik Dahlum skoraði tvívegis fyrir gestaliðið.

Start hafnaði í 2. sæti í 1. deildinni á síðustu leiktíð og leikur því í deild þeirra bestu á komandi tímabili. Fyrsti leikur Start er gegn Tromsø 11. mars. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert