María skoraði í norskum sigri

María Þórisdóttir
María Þórisdóttir Ljósmynd/Sindri Sverrisson

Norska kvennalandsliðið í fótbolta sigraði það skoska, 3:0, er þau leiddu saman hesta sína á La Manga á Spáni í kvöld. María Þórisdóttir, dóttir Þóris Hergeirssonar, landsliðsþjálfara kvennaliðs Noregs, skoraði þriðja mark Norðmanna með skalla eftir hornspyrnu. 

Markið hjá Maríu var hennar fyrsta landsliðsmark í 21. landsleiknum. Ísland mætir norska liðinu á La Manga næstkomandi þriðjudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert