Rúnar lék sinn fyrsta leik með St. Gallen

Rúnar Már Sigurjónsson með trefil frá St. Gallen eftir undirskriftina …
Rúnar Már Sigurjónsson með trefil frá St. Gallen eftir undirskriftina á mánudaginn.

Rúnar Már Sigurjónsson lék í dag sinn fyrsta leik fyrir svissneska knattspyrnuliðið St. Gallen. Rúnar gerði lánssamning við félagið á mánudaginn var, en hann er samningsbundinn Grasshoppers, sem einnig leikur í Sviss.

Landsliðsmaðurinn var í byrjunarliðinu sem lagði Dynamo Kiev frá Úkraínu, 2:0, í æfingaleik á Spáni. Hann var tekinn af velli í hálfleik, en St. Gallen skipti stillti upp tveimur mismunandi liðum í sitt hvorum hálfleiknum í dag. 

Fyrsti deildarleikur St. Gallen á árinu er þann 3. febrúar næstkomandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert