Depay skoraði sigurmarkið í 2:1 sigri Lyon með stórglæsilegu skoti í uppbótartíma og var þetta níunda mark hans í deildinni á tímabilinu en Depay lék um tíma með Manchester United.
Þrátt fyrir tapið er Paris SG með örugga forystu í toppsæti deildarinnar. Parísarliðið er með 56 stig en Lyon er í öðru sætinu með 48. Á meðfylgjandi myndskeiði má markið glæsilega hjá Depay.