Mascherano yfirgefur Barcelona

Javier Mascherano.
Javier Mascherano. AFP

Barcelona staðfesti í dag að Argentínumaðurinn Javier Mascherano sé á förum frá félaginu en hann hefur leikið með því í sjö og hálft ár.

Mascherano verður formlega kvaddur á Camp Nou á morgun en Argentínumaðurinn kom til Barcelona frá Liverpool árið 2010.

Frá þeim tíma hefur hann unnið 18 titla með félaginu og spilað 334 leiki með Katalóníuliðinu. Næsti viðkomustaður Mascherano verður í Kína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert