Nýtt „töfrabragð“ hjá Ronaldo (myndskeið)

Cristiano Ronaldo tekur vítaspyrnuna gegn Paris SG.
Cristiano Ronaldo tekur vítaspyrnuna gegn Paris SG. AFP

Portúgalski fótboltasnillingurinn Cristiano Ronaldo beitti nýju „töfrabragði “þegar hann framkvæmdi vítaspyrnu í leik Real Madrid og Paris SG í Meistaradeildinni í gærkvöld.

Ronaldo náði að láta boltann skoppa sekúndubroti áður en hann tók spyrnuna og hann skoraði af öryggi úr vítinu og skoraði þar með sitt 100. mark fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni.

Vangaveltur voru í gangi að Ronaldo hefði snert boltann með stoðfæti sínum áður en hann tók vítaspyrnuna en þegar menn skoðuðu spyrnuna í hægri endursýningu af myndbandi rreyndist svo ekki vera heldur náði hann með einhverjum hætti að hreyfa við torfunni á vítapunktinum sem gerði það af verkum að boltinn var á lofti þegar Ronaldo spyrnti í knöttinn.

Graham Poll, fyrrum dómari, segir að Ronaldo hafi klárlega ekki snert boltinn meira en einu sinni en þar sem boltinn hafi hreyfst að vítapunktinum áður en Ronaldo sparkaði í boltann hefði dómarinn átt að láta framkvæma spyrnuna á nýjan leik.

Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá vítaspyrnuna hjá Ronaldo.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert