Fetar í fótspor föður síns

Isaac Drogba með treyju Guingamp.
Isaac Drogba með treyju Guingamp. Ljósmynd/Guingamp

Isaac Drogba sonur goðsagnarinnar Didier Drogba er genginn í raðir franska knattspyrnuliðsins Guingamp.

Isaac, sem er 17 ára gamall, fetar þar með í fótspor föður síns en hann lék með franska liðinu tímabilið 2002-03. Strákurinn hefur spilað akademíu Chelsea en var kynntur til leiks hjá Guingamp í gærkvöld.

„Ég gæti ekki meira stoltur af þér,“ skrifaði Didier Drogba á Instgram-síðu sína þar sem hann birti mynd af syni sínum.

Didier Drogba, sem er 39 ára gamall, er enn að en hann spilar með bandaríska liðinu Phoenix Rising þar sem hann hefur skorað 10 mörk í 14 leikjum. Drogba er einn af eigendum félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert