Sá sem getur haldið Messi í skefjum

Lionel Messi leikur hér listir sínar með boltann.
Lionel Messi leikur hér listir sínar með boltann. AFP

Frank Lampard fyrrum leikmaður Chelsea er með einn leikmann í huga sem getur haldið Lionel Messi í skefjum þegar Chelsea og Barcelona hefja í kvöld einvígi sitt í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.

Leikmaðurinn sem Lampard á við er franski miðjumaðurinn N'Golo Kante. Lampard telur að Kante geti verið lykilmaðurinn í að Chelsea slái Katalóníuliðið út með því að halda aftur af Messi.

Messi hefur verið aðalmaðurinn í liði Barcelona á leiktíðinni eins og oftast áður en liðið er taplaust í spænsku deildinni og hefur Messi skorað 20 mörk í 24 leikjum með Börsungum í deildinni.

Messi hefur hins vegar aldrei náð að skora gegn Chelsea í þeim átta leikjum sem hann hefur spilað gegn Lundúnaliðinu í Meistaradeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert