CSKA Moskva fyrst í 16 liða úrslit

CSKA Moskva er komið áfram í 16 liða úrslit.
CSKA Moskva er komið áfram í 16 liða úrslit. AFP

CSKA fá Moskvu sigraði Rauðu stjörnuna frá Serbíu, 1:0, á heimavelli sínum í seinni leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta og komst fyrir vikið í 16 liða úrslit, fyrst allra liða.

Alan Dzagoev skoraði sigurmarkið í blálok fyrri hálfleiks, en fyrri leikurinn endaði með markalausu jafntefli. 32 liða úrslitunum lýkur á morgun með 15 leikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert