Real Madrid upp í 3. sætið

Sergio Ramos skorar þriðja mark Real í dag.
Sergio Ramos skorar þriðja mark Real í dag. AFP

Real Madrid vann öruggan 3:1-útisigur á Leganés í efstu deild Spánar í fótbolta í kvöld. Unai Bustinza kom reyndar Leganés yfir snemma leiks en Lucas Vázquez og Casemiro sáu til þess að staðan var 2:1 í hálfleik.

Sergio Ramos tryggði Real síðan stigin þrjú með marki af vítapunktinum í lokin. Real fór upp fyrir Valencia og upp í 3. sæti deildarinnar með sigrinum. Liðið er enn sjö stigum frá grönnum sínum í Atlético Madrid sem eru í 2. sæti og 14 stigum á eftir toppliði Barcelona. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert