Skörð höggvin í lið Real Madrid

Cristiano Ronaldo er meiddur og spilar ekki í kvöld.
Cristiano Ronaldo er meiddur og spilar ekki í kvöld. AFP

Skörð eru höggvin í lið Spánar- og Evrópumeistara Real Madrid fyrir leik liðsins á móti Leganés á útivelli í frestuðum leik í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu sem fram fer í kvöld.

Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo verður fjarri góðu gamni þar sem hann verður hvíldur eftir mikið álag en fleiri sterkir leikmenn Madridarliðsins verða fjarverandi í kvöld. Markvörðurinn Keylor Navas, Marcelo, Luka Modric, Toni Kroos og Jesus Vallejo eiga allir við meiðsli að stríða og eru ekki leikfærir.

Möguleikar Real Madrid á að verja titilinn eru hverfandi en liðið er er í 4. sæti og er 17 stigum á eftir toppliði Barcelona sem hefur leikið einum leik meira.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert