Áfram von um umspilssæti hjá Elmari

Theódór Elmar Bjarnason fagnar marki sínu fyrir íslenska karlalandsliðið í …
Theódór Elmar Bjarnason fagnar marki sínu fyrir íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu í sigri gegn Tyrklandi í undankeppni HM 2018. mbl.is/Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Theódór Elmar Bjarnason og félagar hans hjá Elazigspor halda enn í vonina um að tryggja sér sæti í umspili um laust sæti í tyrknesku efstu deildinni í knattspyrnu karla. Theódór Elmar lék allan leikinn í 2:1-sigri liðsins gegn Giresunspor í 23. umferð næstefstu deildar í gærkvöldi. 

Elazigspor er eins og sakir standa í sjöunda sæti deildarinnar með 34 stig, en liðið er tveimur stigum frá umspilssæti. Theódór Elmar hefur verið í lykilhlutverki í liði Elazigsport á yfirstandandi leiktíð, en hann hefur verið í byrjunarliði í öllum 23 deildarleikjum liðsins. 

Hér að neðan má sjá myndskeið með helstu tilþrifum Theódórs Elmars á leiktíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert