Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn fyrir Wolfsburg þegar liðið lagði Sand að velli með tveimur mörkum gegn engu í 12. umferð þýsku efstu deildarinnar í knattspyrnu kvenna í dag.
Danska landsliðskonan Pernille Harder skoraði fyrra mark Wolfsburg á 38. mínútu leiksins. Það var svo ungverska landsliðskonan Zsanett Jakabfi sem gulltryggði sigur Wolfsburg með marki á 82. mínútu leiksins eftir undirbúning Harder.
Wolfsburg er með 31 stig á toppi deildarinnar eftir þennan sigur, en liðið hefur þriggja stiga forskot á Bayern München sem laut í lægra haldi fyrir Freiburg í dag.