Kristófer Ingi Kristinsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Willem II þegar lið bar sigurorð af Roda í 25. umferð hollensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í dag. Kristófer Ingi kom inn á sem varamaður í uppbótartíma leiksins.
Albert Guðmundsson sat hins vegar allan tímann á varamannabekk PSV Eindhoven sem bar sigur úr býtum, 3:1, þegar liðið mætti Feyenoord á sama tíma.
PSV Eindhoven trónir á toppi deildarinnar með 65 stig, en liðið hefur sjö stiga forystu á Ajax sem situr í öðru sæti deildarinnar. Willem II er hins vegar í 14. sæti deildarinnar með 23 stig, en liðið er stigum frá fallsvæði deildarinnar.