Ferna frá Ronaldo

Cristiano Ronaldo með boltann í leikslok í kvöld.
Cristiano Ronaldo með boltann í leikslok í kvöld. AFP

Cristiano Ronaldo minnti hressilega á sig í kvöld þegar hann skoraði fjögur mörk í sigri Real Madrid á Girona, 6:3, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu.

Ronaldo kom Real yfir á 11. mínútu og skoraði síðan þrívegis í síðari hálfleik. Hann innsiglaði sigurinn með sjötta markinu í uppbótartíma. Lucas Vázquez og Gareth Bale skoruðu hin tvö mörk liðsins.

Real Madrid komst með sigrinum upp fyrir Valencia og í þriðja sæti deildarinnar með 60 stig. Barcelona, sem vann Athletic Bilbao 2:0 fyrr í dag, er með 75 stig en Atlético Madrid, sem tapaði 2:1 fyrir Villarreal er með 64 stig í öðru sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert