Fékk víti fyrir skelfilegan leikaraskap

Raul Rivero er leikmaður Colo-Colo.
Raul Rivero er leikmaður Colo-Colo. AFP

Sílebúinn Jean Meneses var í aðalhlutverki er Universidad de Concepción hafði betur gegn Colo-Colo í sílesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um helgina, 2:1. Sigurmarkið kom úr vítaspyrnu sem Meneses náði í, seint í leiknum.

Eins og sést á meðfylgjandi myndbandi var um augljósan leikaraskap að ræða. Einhverjir vilja meina að þetta sé með verri dýfum sem sést hefur og þykir ótrúlegt að vítaspyrna hafi verið dæmd. 

Hér að neðan má sjá myndband af þessum skrautlegu tilburðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert