Lionel Messi mun æfa á æfingasvæði Real Madrid í næstu viku þar sem hann er í argentínska landsliðshópnum sem mætir Spánverjum í vináttuleik í fótbolta á þriðjudaginn eftir viku.
Verður það eflaust sérstök tilfinning fyrir Messi að æfa hjá Real, þar sem hann er goðsögn hjá erkifjendunum í Barcelona. Búast má við því að Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Real Madrid verði á svæðinu, ásamt þeim leikmönnum sem ekki voru valdir í landslið sinna þjóða.
Argentína mætir Ítalíu á Etihad-vellinum í Manchester á föstudagskvöldið og svo Spánverjum á þriðjudaginn kemur á Wanda Metropolitano, heimavelli Atletico Madríd.