Sisto tryggði danskan sigur

Frá leik liðanna í kvöld.
Frá leik liðanna í kvöld. AFP

Danmörk og Panama undirbúa sig nú fyrir heimsmeistarakeppnina í fótbolta í Rússlandi í sumar og mættust þau í vináttuleik í Kaupmannahöfn í dag. Svo fór að Danir fóru með sigur af hólmi, 1:0. 

Pione Sisto, leikmaður Celta Vigo, skoraði sigurmarkið á 69. mínútu. Þremur mínútum áður fékk Blas Pérez beint rautt spjald hjá Panama. 

Danir eru í riðli með Perú, Ástralíu og Frakklandi á HM á meðan Panama mætir Belgíu, Túnís og Englandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert