Hannes Þór valinn maður leiksins

Hannes Þór Halldórsson.
Hannes Þór Halldórsson. mbl.is/Kjartan Þorbjörnsson

Hannes Þór Halldórsson var valinn maður leiksins er lið hans Randers gerði 1:1 jafntefli gegn OB í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Heimamenn í Randers náðu forystunni á 62. mínútu með marki Mikael Boman en Nicklas Helenius jafnaði metin fyrir OB aðeins tveimur mínútum síðar.

Þrátt fyrir að hafa þurft að sækja boltann einu sinni í eigið mark var Hannes talinn standa sig afar vel í markinu og því valinn maður leiksins af áhorfendum.

Tímabilið hefur verið nokkuð erfitt hjá Hannesi og félögum en liðið leikur nú í umspilsriðli um að falla ekki úr deildinni og situr þar í 3. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert