Hólmar Örn Eyjólfsson er kominn með liði Levski Sofia í úrslitaleik búlgörsku bikarkeppninar í knattspyrnu eftir jafntefli, 2:2, við erkifjendurna CSKA Sofia á heimavelli í seinni leik liðanna í undanúrslitunum í dag.
Levski vann fyrri leikinn, 2:0, og mætir Slavia Sofia í úrslitaleiknum miðvikudaginn 9. maí.
Hólmar lék allan leikinn í vörn Levski sem komst tvisvar yfir og var aldrei í teljandi hættu, jafnvel þó liðið missti varnartengiliðinn Kali Thiam af velli eftir tæpan hálftíma með rautt spjald.