Sara Björk skoraði í þriðja leiknum í röð

Sara Björk Gunnarsdóttir fagnar marki með liðsfélögum sínum.
Sara Björk Gunnarsdóttir fagnar marki með liðsfélögum sínum. Ljósmynd/Heimasíða Wolfsburg

Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, var á skotskónum fyrir þýska meistaraliðið Wolfsburg þegar liðið vann öruggan útisigur gegn Jena í deildinni þar í landi í dag, 4:0.

Staðan í hálfleik var 2:0 fyrir Wolfsburg og strax í upphafi þess síðari bætti Sara við þriðja marki liðsins. Lokatölur 4:0 sem áður segir. Þetta er þriðji leikurinn í röð þar sem Sara er á skotskónum, en hún skoraði gegn Essen í deildinni 15. apríl og svo gegn Chelsea í Meistaradeildinni á sunnudag.

Wolfsburg er í efsta sæti þýsku 1. deildarinnar með 43 stig og fimm stiga forskot á Bayern München.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert