Fyrsta mark Arons - myndskeið

Aron Sigurðarson
Aron Sigurðarson Ljósmynd/Heimasíða Start

Aron Sigurðarson skoraði jöfnunarmark Start á útivelli á mótu Stabæk í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Leikurinn endaði með 1:1 jafntefli og kom mark Arons á 70. mínútu og var það fyrsta markið sem hann skorar fyrir liðið. 

Aron klárði þá vel er hann komst einn í gegn. Aron spilaði all­an leik­inn með Start eins og Kristján Flóki Finn­boga­son, en Guðmund­ur Andri Tryggva­son var ekki með liðinu.

Hér að neðan má sjá þessa snyrtilegu afgreiðslu hjá Aroni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert