Þjálfari Ingvars og Emils rekinn

Ingvar Jónsson.
Ingvar Jónsson. Ljósmynd/sandefjordfotball.no

Norska úrvalsdeildarliðið Sandefjord, sem markvörðurinn Ingvar Jónsson og Emil Pálsson leika með, rak í gær þjálfara liðsins, Magnus Powell, frá störfum.

Powell var ráðinn þjálfari Sandefjord um miðjan janúar á þessu ári en eftir frekar dapurt gengi og viðræður við leikmenn liðsins ákvað stjórn Sandefjord að segja Powell upp störfum.

Eftir sex umferðir í norsku úrvalsdeildinni hefur Sandefjord aðeins unnið einn leik en liðið er með 5 stig í 12. sæti deildarinnar af 16 liðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert