Emil og félagar gulltryggðu sætið

Emil Hallfreðsson í leik með Udinese.
Emil Hallfreðsson í leik með Udinese. AFP

Emil Hallfreðsson og félagar í ítalska liðinu Udinese gulltryggðu sætið sitt í efstu deild á næstu leiktíð með 1:0-sigri á Bologna á heimavelli í dag. Emil var í byrjunarliði Udinese og lék í 89 mínútur.

Udinese hefur verið í mikilli fallbaráttu í vetur en tryggði sér sætið með tveimur sigrum í síðustu tveimur leikjunum eftir 14 leiki í röð án sigurs þar á undan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert