Sigur í kveðjuleik Iniesta

Iniesta gengur af velli í treyju Barcelona í síðasta skipti.
Iniesta gengur af velli í treyju Barcelona í síðasta skipti. AFP

Andrés Iniesta lék sinn síðasta leik fyrir Barcelona í 1:0-sigri á Real Sociedad í spænsku A-deildinni í fótbolta í kvöld. Philippe Coutinho skoraði sigurmark Börsunga á 57. mínútu.

Iniesta var í byrjunarliði Barcelona og lék fyrstu 82 mínúturnar áður en hann fékk heiðursskiptingu. Iniesta hefur verið í herbúðum Barcelona allan ferilinn og spilað 674 leiki, aðeins Xavi hefur spilað fleiri leiki fyrir liðið eða 767. 

Á 16 árum hefur Iniesta unnið 32 titla með Barcelona, þarf af spænsku deildina níu sinnum og Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert