Vill fá annað tækifæri hjá Liverpool

Suso í leik með AC Milan.
Suso í leik með AC Milan. AFP

Spænski knattspyrnumaðurinn Suso er opinn fyrir því að ganga í raðir Liverpool á nýjan leik. Suso náði sér ekki á strik á Englandi og fór yfir til AC Milan árið 2015 þar sem hann hefur blómstrað.

Suso spilaði 21 leik á fjórum og hálfu ári hjá Liverpool áður en Milan keypti hann á eina milljón punda. „Það er sérstakt að spila í ensku úrvalsdeildinni og ég væri til í að spila fyrir Liverpool aftur. Ég ólst upp þar og það er stórt félag," sagði Suso við Observer. 

„Ég kynntist Steven Gerrard og var liðsfélagi Luis Súarez, Philippe Coutinho og Jamie Carragher. Ég mun aldrei gleyma tímanum mínum hjá Liverpool," bætti hann við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert