Griezmann ekkert á förum

Antoine Griezmann fagnar með dóttur sinni eftir sigurinn í Evrópudeildinni.
Antoine Griezmann fagnar með dóttur sinni eftir sigurinn í Evrópudeildinni. AFP

Franski sóknarmaðurinn Antoine Griezmann er sagður hafa tjáð samherjum sínum hjá spænska knattspyrnuliðinu Atlético Madrid að hann hyggist halda kyrru fyrir hjá félaginu.

Þetta kemur fram í spænska blaðinu Marca í dag en meistararnir í Barcelona hafa borið víurnar í Frakkann og vilja fá hann til liðs við sig í sumar.

Griezmann er samningsbundinn Atlético Madrid til ársins 2022 en hann kom til liðsins frá spænska liðinu Real Sociedad árið 2014 og hefur verið í stóru hlutverki með Madridarliðinu, sem á dögunum tryggði sér sigur í Evrópudeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert