Vinsamlegast vinnið Liverpool!

David Beckham og Zidane fagna marki á sínum tíma.
David Beckham og Zidane fagna marki á sínum tíma. DYLAN MARTINEZ

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn David Beckham biðlar til Zinedine Zidane, knattspyrnustjóra Real Madrid, um að vinna Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað kvöld. Beckham og Zidane voru samherjar hjá Real Madrid um tíma. 

Beckham er uppalinn hjá Manchester United, erkifjendum Liverpool, og vill hann ekki sjá að enska liðið verði Evrópumeistari.

„Það er glæsilegt að Zidane getur verið svona góður stjóri þegar hann var svona góður leikmaður líka. Ég vil óska þeim góðs gengis í úrslitaleiknum. Vinsamlegast vinnið Liverpool!“ sagði Beckham í myndbandi á Instagram-síðu sinni.

Hér að neðan má sjá myndbandið skemmtilega, en þar er Zidane við hlið Beckham. 

<div> <div></div> </div>

<a href="https://www.instagram.com/p/BjM__V6ljwY/" target="_blank">Great to sit down with ‘The Boss’ and talk about some of our European memories. #HereToCreate @zidane @realmadrid @adidasfootball</a>

A post shared by <a href="https://www.instagram.com/davidbeckham/" target="_blank"> David Beckham</a> (@davidbeckham) on May 25, 2018 at 7:07am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert