Er Ronaldo á förum?

Cristiano Ronbaldo klappar fyrir stuðningsmönnum Real Madrid eftir leikinn í …
Cristiano Ronbaldo klappar fyrir stuðningsmönnum Real Madrid eftir leikinn í kvöld. AFP

Cristiano Ronaldo gaf í skyn eftir sigur Real Madrid á Liverpool, 3:1, í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í Kiev í kvöld að hann gæti verið á förum frá Evrópumeisturunum.

„Núna fögnum við sigrinum og á næstu dögum mun ég svara stuðningsmönnum okkar, sem hafa virkilega verið á mínu bandi. Það er búið að vera mjög ánægjulegt að vera leikmaður Real Madrid,“ sagði Ronaldo í sjónvarpsviðtali eftir lelikinn.

Þegar fréttamaðurinn sagði að þetta hljómaði eins og hann væri að kveðja félagið svaraði Portúgalinn:

„Þið fáið svar mitt eftir nokkra daga. Nú er rétt að njóta augnabliksins. Framtíð eins leikmanns skiptir ekki máli. Við vorum að vinna sögulegan sigur,“ sagði Ronaldo, sem af og til hefur gefið í skyn að hann gæti yfirgefið Real Madrid að þessu tímabili loknu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert