Salah fór úr axlarlið

Mohamed Salah og Sergio Ramos kljást sem endaði með byltunni …
Mohamed Salah og Sergio Ramos kljást sem endaði með byltunni og meiðslum Salah. AFP

Liverpool FC hefur staðfest að Egyptinn Mo Salah fór úr axlarlið í rimmunni við Sergio Ramos í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Ljóst er að þátttaka hans á HM í Rússlandi er í hættu en ekki er hægt að fullyrða um það. 

Salah fer væntanlega í myndatöku á morgun og skýrist þá væntanlega hvort eitthvað annað hafi skaddast og hversu alvarleg staðan er. 

Í verstu tilfellum getur tekið þrjá til fjóra mánuði að jafna sig til fulls eftir að öxl fer úr lið. Líkurnar á því að Salah geti beitt sér með Egyptum á HM verða að teljast fremur litlar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert