Salah og Carvahal meiddir af velli

Mohamed Salah var grátandi þegar hann yfirgaf völlinn í Kiev …
Mohamed Salah var grátandi þegar hann yfirgaf völlinn í Kiev í kvöld. AFP

Bæði Liverpool og Real Madrid urðu fyrir áfalli í fyrri hálfleiknum í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í Kiev í kvöld.

Mohamed Salah framherji Liverpool meiddist á öxl og fór af velli eftir hálftíma en Adam Lallana kom í hans stað.

Dani Carvahal bakvörður Real Madrid meiddist og fór af velli á 37. mínútu en Nacho kom í hans stað.

Flautað hefur verið til hálfleiks í Kiev og staðan er 0:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert