Skilur ekkert í Coutinho og Suárez

Philippe Coutinho hefur spilað vel með Barcelona.
Philippe Coutinho hefur spilað vel með Barcelona. AFP

John W. Henry, eigandi enska knattspyrnufélagsins Liverpool, skilur ekki hvers vegna Luis Suárez og Philippe Coutinho yfirgáfu félagið til að ganga í raðir Barcelona. 

Coutinho fetaði í fótspor Suárez í janúar og fór frá Liverpool til Spánarmeistaranna á 142 milljónir punda. Barcelona féll úr leik í átta liða úrslitum meistaradeildarinnar á meðan Liverpool mætir Real Madrid í úrslitaleik keppninnar í kvöld. 

„Kannski skil ég þetta ekki því ég er frá Bandaríkjunum. Ég skil ekki af hverju leikmenn vilja fara frá Liverpool. Saga félagsins er mögnuð og milljónir manna um allan heim styðja félagið. Á Spáni er engin samkeppni og liðin spila 30 tilgangslausa leiki og bíða svo eftir Meistaradeildinni,“ sagði Henry við samtök fréttamanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert