Rakel jók á eymd botnliðsins

Rakel Hönnudóttir skoraði tvö mörk í dag.
Rakel Hönnudóttir skoraði tvö mörk í dag. mbl.is/Golli

Rakel Hönnudóttir skoraði bæði mörkin er Limhamn Bunkeflo vann 2:0-sigur á botnliði Kalmar í sænsku efstu deildinni í knattspyrnu kvenna.

Rakel skoraði fyrra markið á 48. mínútu og það síðara á þeirri 78. áður en hún var svo tekin af velli fjórum mínútum fyrir leikslok.

Anna Björk Kristjánsdóttir spilar einnig með Bunkeflo og lék hún allan leikinn. Anna, Rakel og stöllur þeirra eru nú í 6. sæti deildarinnar að átta umferðum loknum með 11 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert