Hazard til Real Madrid?

Eden Hazard gæti verið á leið til Real Madrid.
Eden Hazard gæti verið á leið til Real Madrid. AFP

Belgíski knattspyrnumaðurinn Eden Hazard lét hafa það eftir sér í viðtali við franska íþróttablaðið L'Equipe að Real Madrid vissi hvað þeir þyrftu að gera ef þeir vildu kaupa hann frá Chelsea. 

Hazard sagðist aðeins tilbúinn að vera áfram hjá Chelsea ef þeir mynda bæta sig: „Ef ég ætla að vera áfram verður það aðeins ef Chelsea bætir sig frá síðustu leiktíð. Ég ætla ekki að vera kyrr ef liðið verður verra.“

Hazard sagðist þó ekki ætla að fara til Real Madrid bara til þess að fara til Real Madrid: „Ef ég á að fara til Madrid bara til þess að fara þá verður svarið nei. Ég þarf langtímaverkefni og hjá Chelsea er ég með slíkt. Ef ég á góða heimsmeistarakeppni þá verður allt auðveldara. Ég vil ekki tala um félagsskipti eins og er og í London hef ég unnið allt fyrir utan meistaradeildina. Ég er á þeim stað í mínum ferli þökk sé Chelsea.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert