Svava skoraði tvö í öruggum sigri

Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Røa í dag.
Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Røa í dag. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Røa tók á móti Byåsen í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu í Noregi í dag þar sem heimakonur fóru ansi illa með gestina, 11:0. Svava Rós Guðmundsdóttir var í byrjunarliði Røa í dag og skoraði tvö mörk í leiknum en þau komu bæði í fyrri hálfleik.

Þær Therese Åsland og Rebecka Holum voru atkvæðamestar í liði heimakvenna í dag og skoruðu báðar þrennu. Røa er því komið áfram í átta liða úrslit bikarkeppninnar en liðið er í níunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 10 stig eftir fyrstu níu leikina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert