Fyrrverandi liðsfélagi Jóns Daða á batavegi

Carl Ikeme í leik með Wolves. Hann tók engan þátt …
Carl Ikeme í leik með Wolves. Hann tók engan þátt með liðinu á síðustu leiktíð. AFP

Íslenska landsliðið sendi Carl Ikeme batakveðju á dögunum en nígeríski markvörðurinn hefur háð baráttu við krabbamein og er því ekki með löndum sínum í Rússlandi á HM þessa daganna.

Ikeme er fyrrverandi liðsfélagi Jóns Daða Böðvarssonar en þeir léku saman hjá Wolves á Englandi um skeið. Jón Daði birti á dögunum mynd af sér og landsliðsmönnum með áritaða treyju ætlaða Ikeme.

Í dag bárust svo góðar fréttir af kappanum en hann birti á Twitter síðu sinni að hann er nú á batavegi eftir langa og stranga krabbameinsmeðferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert