Yfirburðir hjá FH í Finnlandi

Byrjunarlið FH í dag.
Byrjunarlið FH í dag. Ljósmynd/Facebook-síða FH-inga

FH vann sannfærandi 3:0-sigur á finnska liðinu Lahti á útivelli í forkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta í dag. FH var mun betri aðilinn og voru úrslitin sanngjörn og fer FH því með vænlega stöðu í síðari leikinn sem fram fer í Kaplakrika eftir viku.

Halldór Orri Björnsson kom FH yfir strax á fjórðu mínútu með góðum skalla eftir sendingu frá Atla Guðnasyni. Steven Lennon tvöfaldaði forskotið á 18. mínútu er hann lék glæsilega á vörn heimamanna og vippaði svo snyrtilega yfir Damjan Shishkovski í marki Lahti. 

Leikurinn róaðist nokkuð í síðari hálfleiknum en varamaðurinn Robbie Crawford innsiglaði glæsilegan 3:0-sigur FH með marki á síðustu mínútunni. Hann kláraði þá vel innan teigs eftir góða sendingu frá Atla Guðnasyni. 

Lahti 0:3 FH opna loka
90. mín. Robbie Crawford (FH) skorar 0:3 - Atli Guðnason tekur boltann vinstra megin við teginn, sækir á vörnina og á flotta sendingu á Crawford sem klárar af öryggi innan teigs. Þvílík staða!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert