Vilhjálmur dæmir í Kaupmannahöfn

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leik FC Kaupmannahöfn og KuPS Kuopio í forkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta þann 19. júlí næstkomandi, en leikurinn fer fram í Kaupmannahöfn.

Honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson. Fjórði dómari leiksins verður Þóroddur Hjaltalín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert