Wayne Rooney fer vel af stað í bandaríska fótboltanum en hann lék sinn fyrsta leik með DC United aðfaranótt sunnudags er liðið vann 3:1-sigur á Vancouver Whitecaps á nýjum heimavelli liðsins.
Rooney byrjaði á bekknum en kom inn á sem varamaður á 58. mínútu er staðan var 1:0, DC United í vil. Ellefu mínútum siðar var Paul Arriola búinn að tvöfalda forskotið og var Rooney áberandi í sókninni sem varð að markinu.
Hann lagði svo upp þriðja markið og annað mark Arriola á 80. mínútu og DC komst í 3:0. Vancouver minnkaði muninn undir lokin en lokatölur urðu 3:1 fyrir DC United.
United-liðið er í 22. sæti, sem er næstneðsta sæti deildarinnar, með 14 stig eftir 15 leiki. Liðið á hins vegar 4-5 leiki inni á flest lið.
Hér að neðan má sjá svipmyndir úr leiknum.