Vinicius kynntur til leiks hjá Real

Vinicius Junior var kynntur til leiks á Santiago Bernabeu í …
Vinicius Junior var kynntur til leiks á Santiago Bernabeu í gær. AFP

Spænska knatt­spyrnu­fé­lagið Real Madrid kynnti hinn 18 ára Vinicius Junior til leiks á Santiago Bernabeu-vellinum í gær en þessi ungi brasilíski sóknarmaður kemur frá Flamengo í heimalandinu.

Real borgaði 38,7 milljónir punda fyrir leikmanninn en enginn leikmaður undir 19 ára hefur kostað meira. Félagsskiptin voru samþykkt fyrir ári en gátu ekki gengið endanlega í gegn fyrr en Vinicius varð 18 ára.

Hann spilaði 37 leiki fyrir Flamengo á síðustu leiktíð og skoraði sjö mörk. Hann var kos­inn besti maður móts­ins, ásamt því að vera marka­hæst­ur, þegar Bras­il­ía varð heims­meist­ari U17 landsliða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert