Bakayoko mættur til AC Milan

Miðjumaðurinn Tiemou Bakayoko er á leiðinni til AC Milan á …
Miðjumaðurinn Tiemou Bakayoko er á leiðinni til AC Milan á láni. AFP

Knattspyrnumaðurinn Tiemoue Bakayoko er á leiðinni til AC Milan á láni frá Chelsea. Hann er mættur til Milan í læknisskoðun og er búist við að hann skrifi undir þegar skoðuninni er lokið.

Bakayoko var keyptur til Chelsea fyrir síðasta tímabil en gekk illa að aðlagast enska boltanum. Chelsea hefur fengið til sín Jorginho og Mateo Kovacic í sumar og því var Bakayoko kominn aftarlega í goggunarröðina. 

Samkvæmt spænska blaðinu AS er um eins árs lánssamning að ræða og hefur AC Milan réttin á því að kaupa hann eftir tímabilið á 35 milljónir evra.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert