Hannes og félagar úr leik

Hannes Þór Halldórsson og liðsfélagar hans í Qarabag eru úr …
Hannes Þór Halldórsson og liðsfélagar hans í Qarabag eru úr leik í Meistaradeild Evrópu. AFP

Qarabag er úr leik í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu eftir 1:1-jafntefli liðsins í kvöld gegn BATE á Borisov-vellinum í Hvíta-Rússlandi í seinni leik liðanna í 3. umferð keppninnar. Fyrri leik liðanna lauk með 1:0-sigri BATE í Aserbaídsjan og gestirnir urðu því að vinna í kvöld til þess að eiga möguleika á því að fara áfram.

Mirko Ivanic kom heimamönnum yfir á 20. mínútu en Míchel jafnaði metin fyrir gestina á 54. mínútu. Á 77. mínútu fékk Innicent Emeghara að líta sitt annað gula spjald og gestirnir því einum manni færri það sem eftir lifði leiks. Þeir reyndu hvað þeir gátu að skora sigurmark leiksins en tókst ekki að koma knettinum í netið og lokatölur því 1:1.

Hannes Þór Halldórsson stóð á milli stanganna hjá Qarabag í leiknum í kvöld og stóð sig vel en Qarabag mætir annaðhvort Val eða Sheriff í 4. umferð Evrópudeildar UEFA.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert