Malmö úr leik í Meistaradeildinni

Arnór Ingvi fagnar marki sínu í fyrri leik liðanna í …
Arnór Ingvi fagnar marki sínu í fyrri leik liðanna í Svíþjóð í síðustu viku. Ljósmynd/@Malmo_FF

Vidi tók á móti Malmö á Pancho-vellinum í Felcsút í Ungverjalandi í dag í seinni leik liðanna í 3. umferð Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu en leiknum lauk með markalausu jafntefli. Fyrri leik liðanna lauk með 1:1-jafntefli í Svíþjóð og ungverska liðið fer því áfram í næstu umferð á útivallarmarki en Malmö er úr leik í Meistaradeildinni í ár.

Arnór Ingvi Traustason var ekki í leikmannahópi Malmö í kvöld en hann skoraði eina mark liðsins í 1:1-jafnteflinu í Svíþjóð í fyrri leik liðanna. Evrópudraumar Malmö er hins vegar ekki úti en liðið fer nú í forkeppni Evrópudeildar UEFA.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert