Moses hættur þrátt fyrir ungan aldur

Victor Moses er hættur með landsliðinu þrátt fyrir að vera …
Victor Moses er hættur með landsliðinu þrátt fyrir að vera einungis 27 ára gamall. AFP

Knattspyrnumaðurinn Victor Moses er hættur að leika með nígeríska landsliðinu en þetta staðfesti hann í dag. Moses er einungis 27 ára gamall og því hafa fréttirnar komið mörgum á óvart en hann er samningsbundinn Chelsea á Englandi. 

Moses hefur spilað með landsliði Nígeríu frá árinu 2012 þar sem hann hefur skorað 12 mörk í 37 leikjum. Hann byrjaði alla þrjá leiki liðsins á HM í Rússlandi í sumar þar sem hann skoraði eitt mark og lagði upp annað.

Nígería lék í D-riðli heimsmeistaramótsins ásamt Íslandi, Argentínu og Króatíu en liðinu mistókst að komast upp úr riðlinum eftir tap gegn Argentínu og Króatíu. Eini sigurleikur liðsins kom gegn Íslandi í Kaliningrad þar sem Nígería vann 2:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert