Hólmar og félagar unnu grannaslaginn

Hólmar Örn Eyjólfsson og félagar eru á toppnum.
Hólmar Örn Eyjólfsson og félagar eru á toppnum. Ljósmynd/Levski Sofia

Hólmar Örn Eyjólfsson og félagar í Levski Sofia eru á toppi búlgörsku A-deildarinnar eftir 2:0-sigur á nágrönnum sínum í Septemvri Sofia.

Hólmar Örn hefur verið lykilmaður í liði Levski það sem af er móti en hann var í byrjunarliðinu í dag og spilaði allan tímann, eins og í síðustu fjórum leikjum. Þeir Davide Mariani og Stanislav Kostov skoruðu mörkin í fyrri hálfleik í dag.

Levsi er á toppi deildarinnar eftir fjóra sigra og eitt janftefli. CSKA Sofia er þó stigi aftar og á leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert