Mariano Díaz til Real Madrid

Mariano Díaz er genginn til liðs við Real Madrid frá …
Mariano Díaz er genginn til liðs við Real Madrid frá Lyon. AFP

Mariano Díaz er genginn til liðs við spænska knattspyrnufélagið Real Madrid en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í dag. Þessi 25 ára gamli framherji kom fyrst til Real Madrid árið 2011 en félagið seldi hann til Lyon í Frakklandi, síðasta sumar, fyrir 8 milljónir evra.

Díaz skoraði 18 mörk í 34 deildarleikjum með Lyon í frönsku 1. deildinni á síðustu leiktíð og hefur Real Madrid nú keypt hann aftur til baka fyrir 30 milljónir evra. Díaz skrifar undir fimm ára samning við spænsku Evrópumeistarana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert