Miðasala á leikinn við Sviss hefst á þriðjudaginn

Steven Zuber að skora gegn Íslendingum í St.Gallen. Gylfi Þór …
Steven Zuber að skora gegn Íslendingum í St.Gallen. Gylfi Þór Sigurðsson er til varnar.

Miðasala á leik Íslands og Sviss í Þjóðadeild UEFA í knattspyrnu hefst klukkan 12 á þriðjudaginn á vefnum tix.is.

Ísland og Sviss mætast á Laugardalsvellinum mánudaginn 15. október og þar fá Íslendingar kjörið tækifæri til að hefna ófaranna frá því í St.Gallen á dögunum þar sem Svisslendingar unnu stórsigur 6:0.

Þrennt miðaverð er í boði á leikinn og er eftirfarandi:

• 7.500
• 5.500
• 3.500

50% afsláttur verður í boði fyrir börn.

Næsti leikur íslenska landsliðsins er vináttuleikur gegn heimsmeisturum Frakka sem fram fer í Guingamp 11. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert