„Pogba róaði okkur niður“

Paul Pogba var besti leikmaður Manchester United gegn Young Boys …
Paul Pogba var besti leikmaður Manchester United gegn Young Boys í kvöld. AFP

Luke Shaw, bakvörður enska knattspyrnufélagsins Manchester United, var ánægður með Paul Pogba, miðjumann liðsins, eftir 3:0-sigur United gegn Young Boys í H-riðli Meistaradeildar Evrópu í Sviss í kvöld en Pogba skoraði tvívegis í leiknum og lagði upp þriðja mark liðsins sem Anthony Martial skoraði.

„Þetta var mjög erfitt í fyrri hálfleik og við byrjuðum leikinn illa. Völlurinn var erfiður viðureignar en við unnum okkur inn í leikinn. Paul Pogba sýndi töfra í fyrsta markinu og hann róaði okkur niður. Það er alltaf erfitt að mæta á svona útivöll þar sem stuðningsmennirnir láta þig heyra það duglega. Við náðum sem betur fer að klára verkefnið.“

„Pogba er oft og tíðum gagnrýndur en við vitum allir hérna hvað hann getur. Persónulega finnst mér hann vera einn besti knattspyrnumaður heims. Hann var fyrirliði í kvöld og dró okkur áfram. Hann sýndi það í kvöld hvers megnugur hann er,“ sagði Shaw enn fremur í samtali við BT Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert