Slæm færanýting Chelsea kom ekki að sök

Willian skoraði sigurmark Chelsea gegn PAOK í dag.
Willian skoraði sigurmark Chelsea gegn PAOK í dag. AFP

Willian reyndist hetja Chelsea þegar liðið vann 1:0-sigur á PAOK frá Grikklandi í L-riðli Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu í Grikklandi í dag en hann skoraði sigurmark leiksins strax á 7. mínútu eftir laglega sendingu Ross Barkley.

Enska liðið var mun sterkari aðilinn í leiknum og fékk fjölda færa til þess að auka forystu sína en markmaður PAOK, Alexandros Paschalakis, stóð vaktina vel í markinu. Chelsea byjar því Evrópudeildina á sigri og er með 3 stig eftir fyrstu umferð riðlakeppninnar, líkt og BATE sem vann 2:0-sigur á Vidi ytra í hinum leik L-riðils.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert